26/08/2026
Lögmannsstofan Jura færði nú í vikunni Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóranum á Akureyri og starfsfólki ákærusviðs og rannsóknardeildar embættisins nokkur eintök af bókinni „Vandaðir stjórnsýsluhættir“, eftir Hafstein Dan Kristjánsson, prófessor í lögfræði.
Bókin er hugsuð sem gagnlegt framlag til símenntunar og fræðslu starfsmanna embættisins um stjórnsýslurétt – enda má alltaf bæta við þekkingu á þessum mikilvæga málaflokki, sérstaklega þegar stjórnsýslan sjálf reynir á mörk vandaðra stjórnsýsluhátta.
„Við vonum að bókin komi að góðum notum og verði lesin vel og vandlega,“ segir Gunnar Gíslason, lögmaður og eigandi lögmannsstofunnar Jura. „Stundum er einfaldasta leiðin til að tryggja vandaða stjórnsýslu að lesa sér til um efnið.“
Lögmannsstofan Jura óskar lögreglustjóra og starfsfólki embættisins góðs gengis við lesturinn og vonast til að bókin komi að gagni.
Meðfylgjandi er gervigreindarmynd af afhendingunni til gamans, en bækurnar voru sendar með pósti.
Lögmannsstofan Jura býr yfir fjölbreyttri og víðtækri reynslu á flestum sviðum lögfræðinnar. Við veitum ráðgjöf af fagmennsku, í trúnaði og með persónulega nálgun að leiðarljósi.