LOGOS lögmannsþjónusta

Directions Website Contact the practice

LOGOS lögmannsþjónusta LOGOS sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf. Skrifstofa LOGOS er staðsett í Reykjavík.

Þeir sem vilja ganga í hóp viðskiptavina stofunnar eða eru áhugasamir á að vita meira um hana er bent á að hafa samband í gegnum netfangið [email protected]

17/06/2026

Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS, LOGOS endurskoðun & ráðgjöf ehf. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, verður forstjóri og leiðir uppbyggingu félagsins.

17/06/2026

Lögmannsstofan Logos og Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, hafa stofnað Logos endurskoðun og ráðgjöf

Atvinnufrelsið varið fyrir dómiHéraðsdómur Reykjavíkur kvað upp í dag dóm í máli sem höfðað var af Intuens Segulómun ehf...
13/05/2026

Atvinnufrelsið varið fyrir dómi

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp í dag dóm í máli sem höfðað var af Intuens Segulómun ehf. gegn embætti landlæknis. Intuens, sem hefur leyfi embættisins til að framkvæma segulómrannsóknir af einstaklingum á grundvelli tilvísana frá læknum, hafði farið fram á að geta boðið upp á slíka þjónustu án tilvísana frá læknum. Landlæknir synjaði félaginu um slíka heimild og bar Intuens þá synjun undir héraðsdóm.

Dómur héraðsdóms, sem var fjölskipaður, er afdráttarlaus um að skýra lagaheimild þurfi til að synja um atvinnurekstur, enda atvinnufrelsi tryggt í stjórnarskrá. Þá hefði rökstuðningur embættisins verið óljós, og embættið í engu sýnt fram á að einstaklingum væri einhver hætta búin við að undirgangast slíkar rannsóknir án tilvísana frá læknum, fremur en með tilvísunum.
Af hálfu Intuens Segulómunar ehf. flutti málið Halldór Brynjar Halldórsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LOGOS, sem gætt hefur hagsmuna félagsins gagnvart hinu opinbera undanfarin ár.
LOGOS þakkar Intuens Segulómun fyrir að hafa valið LOGOS til að gæta hagsmuna sinna.

********
Freedom of Enterprise Defended in Court

The District Court of Reykjavík today delivered its judgment in a case brought by Intuens Segulómun ehf. against the Office of the Director of Health (Embætti landlæknis). Intuens, which holds a licence from the Office to perform MRI scans on individuals on the basis of referrals from doctors, had requested permission to offer such services without referrals from doctors. The Director of Health denied the company such authorisation, and Intuens brought that refusal before the district court.

The judgment of the district court, which sat as a panel of three judges, is unequivocal that a clear statutory basis is required in order to deny the operation of a business, given that freedom of enterprise is guaranteed by the Constitution. The Office's reasoning was furthermore found to be unclear, and the Office had in no way demonstrated that individuals would be exposed to any greater risk by undergoing such examinations without referrals from doctors than with them.
The case was argued on behalf of Intuens Segulómun ehf. by Halldór Brynjar Halldórsson, Supreme Court Attorney and one of the partners at LOGOS, which has represented the company's interests vis-à-vis the public authorities in recent years.
LOGOS thanks Intuens Segulómun for choosing LOGOS to safeguard its interests

Hópur fjárfesta gekk í dag frá kaupum á leikjafyrirtækinu CCP. Fyrir hópnum fóru stjórnendur félagsins en meðfjárfestar ...
06/05/2026

Hópur fjárfesta gekk í dag frá kaupum á leikjafyrirtækinu CCP. Fyrir hópnum fóru stjórnendur félagsins en meðfjárfestar eru m.a. sjóður í stýringu Alda ehf., Omega ehf. og tæknirisinn Google, sem jafnframt hefur gert rannsóknarsamstarfssamning við félagið í gegnum Google DeepMind.

Eftir viðskiptin mun CCP heita Fenris Creations. Höfuðstöðvar félagsins verða áfram í Vatnsmýrinni og Hilmar Veigar Pétursson verður áfram forstjóri.

LOGOS veitti stjórnendunum lögfræðilega ráðgjöf í gegnum allt kaupferlið. Af hálfu LOGOS var verkefnið leitt af Fannari Frey Ívarssyni og Þórólfi Jónsson en ásamt þeim komu Vilhjálmur Herrera Þórisson og Sóldís Rós Símonardóttir að verkefninu.

Það var ánægjulegt að fá að taka þátt í þessu spennandi verkefni og við óskum stjórnendum og starfsfólki Fenris Creations innilega til hamingju með viðskiptin.

******
A group of investors today completed the acquisition of gaming company CCP. The group was led by the company's own management, with co-investors including a fund managed by Aldir ehf., Omega ehf., and technology giant Google, which has also entered into a research collaboration agreement with the company through Google DeepMind.

Following the transaction, CCP will be rebranded as Fenris Creations. The company's headquarters will remain in Vatnsmýri, and Hilmar Veigar Pétursson will continue as Chief Executive Officer.

LOGOS provided legal counsel to the management team throughout the acquisition process. The engagement was led by Fannar Freyr Ívarsson and Þórólfur Jónsson, with Vilhjálmur Herrera Þórisson and Sóldís Rós Símonardóttir also contributing to the matter.

It was a privilege to be involved in this exciting transaction, and we extend our warmest congratulations to the management and staff of Fenris Creations on the successful completion of the deal.

Hæstiréttur sker úr um hvernig skuli fara með séreignarlífeyrissparnað við andlát rétthafaHæstiréttur kvað upp í dag dóm...
29/04/2026

Hæstiréttur sker úr um hvernig skuli fara með séreignarlífeyrissparnað við andlát rétthafa

Hæstiréttur kvað upp í dag dóm í máli sem höfðað var gegn Almenna lífeyrissjóðnum (nú Almenni Lífsverk lífeyrisjóður) af sambýlismaka látins sjóðfélaga, en ágreiningurinn sneri að því hvað yrði um séreignarsparnað hins látna við andlátið. Hinn látni lét eftir sig þrjú börn og hafði sjóðurinn ráðstafað séreigninni til þeirra, en sambýlismaki hins látna taldi sig hins vegar eiga rétt til þriðjungs séreignarinnar, á grundvelli bréferfðar.

Hæstiréttur tók fram í forsendum að niðurstöðu málsins að það væri aðeins við þær aðstæður að hvorki maka né börnum væri til að dreifa sem séreignarlífeyrissparnaður rynni til dánarbús, þannig að hún kæmi til skipta eftir nánari ákvæðum erfðalaga, þar á meðal þeim sem fjölluðu um bréferfð. Samkvæmt því g*t sambýlismakinn, sem bréferfingi hins látna, aðeins átt rétt til hlutdeildar í séreignarlífeyrissparnaði ef hinn látni léti ekki eftir sig maka eða börn. Hæstiréttur tók fram að þessi niðurstaða ætti ekki einungis stoð í fortakslausu orðalagi 2. málsliðar 4. mgr. 11. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og athugasemdum við frumvarp til þeirra laga, heldur einnig skýringu ákvæðisins til samræmis við ákvæði 2. mgr. 8. gr. sömu laga sem bannar ráðstöfun séreignarlífeyrissparnaðar og að gerð verði aðför í séreignarlífeyrissparnaði, sem og tilgangi séreignarlífeyrissparnaðar.

Af hálfu Almenna Lífsverk flutti málið Hjördís Halldórsdóttir, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LOGOS. Henni til aðstoðar var Ýr Sigurðardóttir, verkefnastjóri. LOGOS þakkar Almenna Lífsverk fyrir að hafa valið LOGOS til að gæta hagsmuna sinna.

********
The Supreme Court Rules on the Treatment of Private Pension Savings Upon the Death of the Beneficiary

The Supreme Court today delivered judgment in a case brought against Almenni Lífsverk lífeyrissjóður (formerly Almenni lífeyrissjóðurinn) by the cohabiting partner of a deceased fund member. The dispute concerned the disposition of the deceased’s private pension savings upon his death. The deceased left behind three children, and the fund had allocated the private pension savings to them. However, the cohabiting partner claimed entitlement to one-third of the savings based on a testamentary bequest.

In its reasoning, the Supreme Court emphasized that private pension savings would pass to the estate of the deceased only in circumstances where neither a spouse nor children survive the deceased, in which case the savings would be distributed in accordance with the provisions of inheritance law, including those governing testamentary dispositions. Accordingly, the cohabiting partner, as a testamentary heir, could only claim a share of the private pension savings if the deceased had left neither a spouse nor children.

The Supreme Court further noted that this conclusion is supported not only by the unequivocal wording of the second sentence of Article 11(4) of the Act on Mandatory Pension Insurance and the Operation of Pension Funds, and the legislative history of that provision, but also by an interpretation consistent with Article 8(2) of the same Act, which prohibits disposition of private pension savings and enforcement against private pension savings, as well as by the underlying purpose of such savings.

On behalf of Almenni Lífsverk, the case was argued by Hjördís Halldórsdóttir, Supreme Court Attorney and Partner at LOGOS, assisted by Ýr Sigurðardóttir, Senior Associate. LOGOS thanks Almenni Lífsverk for entrusting the firm with safeguarding its interests.

Address

Efstaleiti 5
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when LOGOS lögmannsþjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to LOGOS lögmannsþjónusta:

Shortcuts

Share