27/02/2026
Dómur Landsréttar: 8,21% úrbótakostnaður talinn verulegur galli í fasteignakaupum
Landsréttur hefur staðfest sýknu kaupanda fasteignar af kröfu seljanda um greiðslu eftirstöðva kaupverðs. Ástæðan var gagnkrafa kaupanda vegna galla sem metnir voru á 8,21% af kaupverði eignarinnar.
Í dómi sínum í máli 151/2025 þann 26.2.2026, kemst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að þessi kostnaður rýri verðmæti fasteignarinnar „svo nokkru varði“ í skilningi laga um fasteignakaup. Við matið var litið til þess að um nýlega fasteign var að ræða sem seljandi hafði lýst sem „glæsilegri“ og í „hundrað prósent ástandi“.
Dómurinn staðfestir að hinn almenni 10% viðmiðunarþröskuldur fyrir verulega galla sé ekki algild regla, heldur taki mið af aðstæðum, svo sem aldri eignar og þeim væntingum sem kaupandi mátti hafa.
Þar sem gallarnir voru metnir hærra en eftirstöðvar kaupverðs var kaupandinn sýknaður og seljanda gert að greiða allan málskostnað.
Magnús Jónsson lögmaður, rak málið fyrir kaupanda.