06/06/2026
Frábært tækifæri fyrir iðnaðarmenn eða laghenta! Ásett verð kr. 12.900.000.
Sumarhús sem þarfnast endurbóta eftir tjón, gott tækifæri til að koma sér upp góðu sumarhúsi nálægt Reykjavík. Húsið var, þar til nýlega, mikið endurnýjað sumarhús í Svarfhólsskógi við Eyrarvatn í Leirársveit (við hliðina á Vatnaskógi).
Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með sturtu, eldhúsi með góðri innréttingu, ísskáp, uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu, bjartri stofu/borðstofu með kamínu og útgengi á sólpall.
Eignin stendur á nærri hektara leigulóð (9.555 fm.) með nýjum 25 ára leigusamningi (frá 2025), með fallegu útsýni móti vestri og norðri. Lóðarleigusamningur verður ýmist yfirtekinn af nýjum kaupanda eða endurnýjaður í heild. Virkt sumarhúsafélag er á svæðinu sem lokað er af með tveimur rafmagnshliðum.
Á vormánuðum rofnaði heitavatnslögn svo mikil gufa og heitt vatn olli verulegu tjóni á eigninni. Allt innbú er ónýtt, innréttingar, veggjaklæðningar, lagnir o.fl. Fyrir liggur úttektarskýrsla Verkís sem áhugasemdir geta fengið.
Helstu endurbætur sem gerðar voru síðustu árin voru m.a.:
- húsið yfirfarið að utan og málað
- tekin inn hitaveita, settir upp vatnsofnar, tengdir við kyndingu og settur heitur pottur á verönd.
- byggt tengirými / geymsla utan á húsið fyrir hitaveitugrind og tengipunkta. Rýmið nýtist sem góð geymsla.
- settur hitaþráður niður á frostfrítt í kaldavatnslögn
- eldhús endurnýjað ásamt öllum helstu tækjum
- nýtt parket á öll gólf nema baðherbergi
- baðherbergi endurnýjað með flísum á gólfi, blöndunartækjum, sturtuklefa o.fl.
Mjög margt af ofangreindu er skemmt eða ónýtt. Undirstöður hússins eru heilar (steyptar súlur, skriðkjallari) og talið er að megnið af burðarvirki í gólfum og útveggjum sé í lagi.
Öll vinna var unnin af iðnaðarmönnum og vandað var til verka.
Áhugasemdir eru hvattir til að kynna sér verkefnið mjög vel og nýta þjónustu fagmanns við skoðun. Skoðunarskylda kaupenda er sérstaklega áréttuð, en í lögum nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Ásett verð kr. 12.900.000.
Áhugasamir skulu setja sig í samband í gegnum netfangið [email protected] eða í gegnum síma 777-1212. Auðvelt er að koma við skoðun.