03/09/2026
Hvað er til ráða þegar hinn ökumaðurinn stingur af eftir árekstur, en þú situr síðan uppi með 50% sök og sjálfsábyrgðina, þrátt fyrir að hafa ekki valdið tjóninu?
Þetta var einmitt spurningin sem umbjóðandi okkar velti upp þegar hann leitaði til okkar, en hann og ökumaðurinn sem stakk af lýstu árekstrinum með ólíkum hætti. Tryggingarfélög þeirra töldu ekki unnt að sanna hvor bæri ábyrgð á árekstrinum og ákváðu því að sök yrði skipt til helminga, sem sagt 50/50.
Við kærðum þessa ákvörðun til Úrskurðarnefndar í vátryggingamálum.
Það lá fyrir í gögnum málsins að bifreið hins ökumannsins var stödd vinstra megin á einbreiðum vegi þegar hann ætlaði sér að beygja til hægri, en þar var bifreið umbjóðanda okkar sem kvaðst hafa verið hægra megin og ekið beint áfram. Eftir áreksturinn flúði hinn ökumaðurinn vettvang, en þegar lögreglan stoppaði hann skömmu síðar kom í ljós að hann var að keyra án ökuréttinda.
Maður gæti haldið að það eitt og sér myndi þýða að hann væri í 100% órétti … en lögfræðin er sjaldnast svo einföld.
Lausnir lögmannsstofa byggði því meðal annars á mikilvægri reglu:
Sá sem gerir það erfiðara að sanna hvað gerðist á ekki að njóta góðs af óvissunni sem hann skapaði.
Úrskurðarnefndin féllst á sjónarmiðið. Þar sem hinn ökumaðurinn yfirgaf vettvang vantaði mikilvæg gögn um aðstæður og staðsetningu bílanna. Hann varð því sjálfur að bera hallann af þeim sönnunarskorti sem hann skapaði með háttsemi sinni.
Fyrri 50/50-sakarskiptingunni var breytt og öll ábyrgðin var lögð á hinn ökumanninn.
Úrskurðurinn er athyglisverður því venjulega þegar frásagnir stangast á og gögn skortir hefur óvissan oftast leitt til 50/50-skiptingar. Hér byggði úrskurðarnefndin hins vegar niðurstöðu sína á því að sá sem skapar sönnunarskortinn á að bera hallann af honum. Því er um að ræða frávik frá úrskurðarvenju að hluta.
Við óskum umbjóðanda okkar innilega til hamingju með málalokin, sem voru sigur að öllu leyti. Staða hans hefur verið leiðrétt í tjónagrunni og sjálfsábyrgðin hans endurgreidd að fullu.
Ertu ósátt/ur við niðurstöðu tryggingafélags eftir árekstur? Þá getur borgað sig að láta fara yfir málið. Lögmenn á Lausnum lögmannsstofu hafa víðtæka reynslu í vátrygginga- og skaðabótamálum. Hafðu samband!