Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Lögrétta Legal Aid

Directions Website

Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Lögrétta Legal Aid Endurgjaldslaus lögfræðiráðgjöf fyrir almenning. Senda má fyrirspurnir á [email protected]

Lögfræðiþjónusta Lögréttu (English below)

Lögfræðiþjónustan Lögréttu býður upp á endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf.

Þjónustan er veitt alla þriðjudaga frá kl. 16:00 – 18:00 og er hægt senda fyrirspurn á netfangið; [email protected]

Starfsemin hefst í september ár hvert og stendur fram í byrjun maí, að undanskyldum prófatímabilum laganema.

Starfsfólk lögfræðiþjónustunnar eru bundið þagnarskyldu við störf sín og ritar undir trúnaðaryfirlýsingu þess efnis.

Það eru laganemar á þriðja til fimmta ári við Háskólann í Reykjavík sem veita einstaklingum þessa endurgjaldslausu lögfræðiráðgjöf.

__________________

Free legal aid at the University of Reykjavik – Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Legal Services

Complimentary legal assistance is available every Tuesday from 4 pm to 6 pm, commencing in September and continuing through April, with the exception of the examination period for students.

For inquiries, please feel free to contact us via email at [email protected].

Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Legal Services upholds strict confidentiality standards by mandating all our volunteers to execute non-disclosure agreements.

This service is administered by students in their 3rd, 4th, and 5th years of law studies at the University of Reykjavík

Við viljum þakka öllum sem sóttu Skattadag Lögréttu kærlega fyrir komuna ! Lögfræðiþjónusta Lögréttu hélt hinn árlega Sk...
11/03/2025

Við viljum þakka öllum sem sóttu Skattadag Lögréttu kærlega fyrir komuna !

Lögfræðiþjónusta Lögréttu hélt hinn árlega Skattadag þann 9. mars sl. Viðburðurinn, sem hefur fest sig í sessi sem mikilvægur liður í samfélagsþjónustu laganema, bauð upp á endurgjaldslausa aðstoð við skil á skattframtölum frá kl. 10 til 15.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Gæðaendurskoðun og þökkum við þeim innilega fyrir gott samstarf.

Aðsóknin var mikil en auglýsingar um viðburðinn birtust meðal annars á fréttamiðlunum Vísi og Morgunblaðinu.

Hér að neðan eru hlekkir á fréttirnar fyrir áhugasama:
- https://www.visir.is/g/20252698764d/veita-o-keypis-ad-stod-vid-gerd-skatt-fram-tals
- https://www.mbl.is/mogginn/bladid/innskraning/?redirect=%2Fmogginn%2Fbladid%2Fgrein%2F1883732%2F%3Ft%3D924121673&page_name=grein&grein_id=1883732

Við viljum þakka öllum sem sóttu Skattadag Lögréttu kærlega fyrir komuna. Það var met aðsókn í ár og erum við afar hreyk...
13/03/2024

Við viljum þakka öllum sem sóttu Skattadag Lögréttu kærlega fyrir komuna. Það var met aðsókn í ár og erum við afar hreykin af því!

Sérstakar þakkir fá ECIT Virtus fyrir samstarfið og sjálfboðaliðar okkar í Lögfræðiþjónustunni.

Sjáumst á næsta ári,
B.kv. stjórn Lögfræðiþjónustu Lögréttu.

Vegna netárásar á tölvukerfi HR liggur tölvupóstur lögfræðiþjónustunnar niðri. Unnið er að lausn og vonum við að póstfan...
06/02/2024

Vegna netárásar á tölvukerfi HR liggur tölvupóstur lögfræðiþjónustunnar niðri. Unnið er að lausn og vonum við að póstfangið verði komið í lag sem fyrst. Öllum erindum verður svarað um leið og færi gefst. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Með bestu kveðju, Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Lögrétta Legal Aid

Address

Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1//Reykjavík University
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögfræðiþjónusta Lögréttu - Lögrétta Legal Aid posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share