17/11/2026
Starfsnám hjá Lyfjastofnun
Lyfjastofnun óskar eftir meistaranema í lögfræði í ólaunað starfsnám á vorönn 2027.
Starfsnámið fer fram undir handleiðslu lögfræðinga stofnunarinnar og veitir tækifæri til að beita fræðilegri þekkingu á fjölbreytt viðfangsefni í starfsemi opinberrar stofnunar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á stjórnsýslurétti, Evrópurétti, persónuvernd og hugverkarétti. Jafnframt er lögð áhersla á vönduð vinnubrögð, frumkvæði og góða færni í rituðu máli á íslensku og ensku.
Nánari upplýsingar veitir Valdís Erla Björnsdóttir á netfanginu [email protected]. Umsókn ásamt ferilskrá sendist á sama netfang fyrir lok dags 10. desember 2026.