ESJA Legal ehf.

Directions Website

ESJA Legal ehf. Lögmannsstofa í Hlíðarfæti 15 í Reykjavík. ESJA Legal ehf. er lögmannsstofa í Reykjavík.

Félagið var stofnað árið 2009 og hefur frá upphafi sinnt ýmis konar ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félög og stofnanir.

Foktjón eftir rokið? Fyrstu dagarnir skipta máli.Foktjón var tilkynnt víða þegar hvassviðri gekk yfir um helgina. Þakplö...
23/11/2026

Foktjón eftir rokið? Fyrstu dagarnir skipta máli.

Foktjón var tilkynnt víða þegar hvassviðri gekk yfir um helgina. Þakplötur fuku í austurhluta borgarinnar og strætóskýli fauk í Breiðholti. Eftir svona veður skiptir máli hvernig fyrstu dagarnir eru nýttir. Sá sem er tryggður á að gera það sem með sanngirni má ætlast til, til að takmarka tjónið. Þá ber tjónþolum að láta tryggingafélagið vita af skaðanum án ástæðulauss dráttar. Sé það vanrækt af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi getur ábyrgð félagsins fallið niður í heild eða að hluta. Hvort tjónið fæst bætt ræðst svo af skilmálum tryggingarinnar og krafa um bætur fyrnist á fjórum árum.

- Hafir þú lent í foktjóni um helgina, skaltu gera eftirfarandi:
- Tryggðu lausa hluti;
- Taktu myndir af skemmdunum áður en gert er við þær;
- Geymdu kvittanir; og,
- Tilkynntu tjónið strax.

Ef tryggingarfélagið hafnar kröfunni getur þú heyrt í okkur og pantað ókeypis tíma í lögfræðiráðgjöf á esl.is.

Landsréttur staðfesti 12. nóvember sýknu í máli, þar sem krafist var ómerkingar á hörðum ummælum í tölvupóstum. Samskipt...
16/11/2026

Landsréttur staðfesti 12. nóvember sýknu í máli, þar sem krafist var ómerkingar á hörðum ummælum í tölvupóstum. Samskiptin voru kafli í annars langvinnri fjölskyldudeilu. Ummælin féllu í póstum til fárra viðtakenda sem þekktu forsögu deilunnar og þau komu í kjölfar þungra orða -- sem sá sem höfðaði málið -- hafði sjálfur látið falla.

Dómstólar meta slík ummæli í samhengi: Hvort um er að ræða skoðun eða staðhæfingu um staðreynd, hverjir lásu þau, hvert tilefnið var og hvort þeim var dreift frekar.

Í þessu máli rúmuðust ummælin innan tjáningarfrelsis og sá sem höfðaði málið var dæmdur til að greiða málskostnað.

Hvað er best að gera í þessum aðstæðum?

Í langflestum aðstæðum er betra að gleyma einhverju orðaskaki heldur en að fara í dómsmál. Þegar endanleg niðurstaða dómsmálsins kemur loksins, eru langflestir löngu búnir að gleyma þessum umdeildu ummælum -- og eru þá minntir aftur á þau, þegar niðurstaðan liggur fyrir. Þá kann málshöfðun vegna umdeildra ummæla að leiða til þess að mun fleiri fá vitneskju um ummælin en ella hefði verið staðan (hin s.k. Streisand-áhrif).

Því er langbesta ráðleggingin alla jafn sú, að halda skrifum sínum málefnalegum, geyma samskiptin í heild sinni og leita ráða víða áður en meiðyrðamál er höfðað.

Ef þú vilt fara yfir réttarstöðuna þína getur þú haft samband við okkur á esl.is.

Hæstiréttur kvað upp dóm 11. nóvember sl. í máli erfingja sem vildu nýta forkaupsrétt að hlutum í einkahlutafélagi í naf...
15/11/2026

Hæstiréttur kvað upp dóm 11. nóvember sl. í máli erfingja sem vildu nýta forkaupsrétt að hlutum í einkahlutafélagi í nafni dánarbús. Einkaskiptum á búinu hafði lokið árið 2014, án þess að réttindi hins látna í félaginu kæmu til skipta.

Erfingjarnir lýstu yfir nýtingu forkaupsréttarins í nafni dánarbúsins í maí 2022, en skiptin voru ekki endurupptekin hjá sýslumanni fyrr en í júní. Þá hafði forkaupsrétturinn verið felldur brott úr samþykktum félagsins.

Hæstiréttur taldi að þegar sýslumaður staðfesti einkaskiptin hafi dánarbúið hætt að vera til sem sérstakur lögaðili. Engin g*t því komið fram fyrir hönd þess og yfirlýsingarnar höfðu ekki þau réttaráhrif sem erfingjarnir byggðu á.

Hvað er best að gera í þessum aðstæðum?

Jú, komi í ljós eign sem hefði átt að koma til skipta en gerði það ekki, þurfa erfingjarnir að tilkynna það sýslumanni og fá leyfi til einkaskipta á ný áður en eigninni er ráðstafað eða réttindi sem henni fylgja eru nýtt. Þar getur tíminn skipt öllu.

Ef þú vilt fara yfir réttarstöðuna þína getur þú haft samband við okkur á

ESJA Legal ehf. er lögmannsstofa í Reykjavík. Sérhæfing í sakamálum, skaðabótarétti, einkamálum, fjölskyldu- og erfðamálum, stjórnsýslurétti og fasteignakauparétti.

Almannavarnir og stjórnvöld kynntu bæklinginn „Verum viðbúin“ þann 3. nóvember sl. og var honum dreift á heimili um allt...
09/11/2026

Almannavarnir og stjórnvöld kynntu bæklinginn „Verum viðbúin“ þann 3. nóvember sl. og var honum dreift á heimili um allt land. Í bæklingnum eru landsmenn hvattir til að eiga vatn, mat og reiðufé til minnst þriggja daga og búa sig undir rafmagnsleysi. Dómsmálaráðherra minnti á að við berum sjálf ábyrgð á okkar heimili. Sú ábyrgð nær líka til þess, að gæta að stöðu þeirra trygginga sem hver og einn er með.

Þær fasteignir sem eru brunatryggðar eru jafnframt tryggðar hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Tryggingin þar nær til tjóns af völdum eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. Eigin áhætta er 2% af hverju tjóni, að lágmarki 400.000 krónur á húseign og 200.000 krónur á innbú.

Það er undir hverjum og einum komið, að tryggja að það sem er tryggt fáist bætt, komi til tjóns. Það er best að gera með því að varðveita kvittanir og reikninga af helstu munum, taka af þeim myndir ef reikningar eru ekki tiltækir, og geyma skilmálana á vísum stað. Verði tjón er mikilvægt að tilkynna það eins fljótt og verða má, þar sem réttur til bóta getur fallið niður, sé tjón tilkynnt of seint.

Ef þú vilt fara yfir réttarstöðuna þína getur þú haft samband við okkur á esl.is.

Tvær vandaðar og vel staðsettar skrifstofur eru til leigu við Hlíðarfót 15 í 102 Reykjavík, beint á móti einkaþotustæðin...
05/11/2026

Tvær vandaðar og vel staðsettar skrifstofur eru til leigu við Hlíðarfót 15 í 102 Reykjavík, beint á móti einkaþotustæðinu á Reykjavíkurflugvelli. Önnur þeirra er laus strax og hin er laus frá 1. janúar. Verðið er 80.000.- krónur, annars vegar, og 110.000.- krónur, hins vegar. Verðin eru án virðisaukaskatts.

Há lofthæð (um 4m) gefur fallegt og opið yfirbragð. Skrifstofurnar eru í nýju húsnæði. Öflugt loftræstikerfi er í rýminu og gólfhiti.

Með leigunni fylgir:

Aðgangur að hraðvirku neti;
Fullbúið fundarherbergi;
Eldhús, baðherbergi og sturta;
Sameiginleg móttaka.

Húsnæðið er miðsvæðis og einstaklega hentugt fyrir þá sem vilja vera nálægt miðbænum – aðeins um þriggja mínútna akstur í hjarta borgarinnar. Næg bílastæði eru á svæðinu.

Nánari upplýsingar í síma 517 3100 eða með tölvupósti á [email protected].

Gagnagrunnur Damiens Charlotin heldur utan um dóma og úrskurði þar sem dómstóll fjallar um notkun gervigreindar í málsgö...
26/10/2026

Gagnagrunnur Damiens Charlotin heldur utan um dóma og úrskurði þar sem dómstóll fjallar um notkun gervigreindar í málsgögnum, einkum tilbúnar tilvísanir í dóma og heimildir sem eru ekki til. Við síðustu uppfærslu, 25. október, voru málin orðin 2.217, og í 879 þeirra áttu lögmenn í hlut. Gervigreind er gagnlegt hjálpartæki en hún getur fullyrt af fullu öryggi um dóm sem aldrei féll. Við ESJA Legal notum stundum gervigreind til að flýta fyrir, en við vísum aldrei í dóm eða lagagrein í okkar gögnum nema að lögmaður hafi áður lesið textann í heild sinni. Og hvernig er þá best fyrir neytendur eða forsvarsmenn fyrirtækja að nýta sér kosti gervigreindarinnar? Jú, það er sniðugt að nota gervigreind til þess að fá einhver svör til að byrja með, en það er mikilvægt að láta gervigreindina svara því hvaðan upplýsingarnar eru fengnar og kanna svo sjálfur hvort heimildirnar stemmi við niðurstöðuna sem maður fékk.

Ef þú vilt ræða málin þá er fyrsta viðtalið hjá ESJA Legal ókeypis og hægt er að panta tíma á esl.is.

Námsmaður fær bætur í samræmi við væntanlegt starfHæstiréttur kvað 14. október upp dóm í máli nr. 4/2026 sem skiptir ung...
19/10/2026

Námsmaður fær bætur í samræmi við væntanlegt starf

Hæstiréttur kvað 14. október upp dóm í máli nr. 4/2026 sem skiptir ungt fólk í námi miklu. Kona sem slasaðist í umferðarslysi árið 2019, á miðju tanntæknanámi, hafði fengið bætur fyrir varanlega örorku miðaðar við lágmarkslaun skaðabótalaga. Meirihluti Hæstaréttar taldi að miða ætti við líklegar framtíðartekjur hennar sem tanntæknis og dæmdi tryggingafélagið til að greiða henni mismuninn.

Rétturinn benti á að lágmarksviðmið laganna hefði í vaxandi mæli fjarlægst raunverulegar tekjur launafólks. Í hennar tilviki nam það 3.422.500 krónum en hefði numið 6.691.000 krónum ef það hefði fylgt almennri launaþróun. Tveir dómarar af fimm skiluðu sératkvæði.

Þeir sem lenda í slysum sem kunna að vera bótaskyld þurfa að hafa það hugfast, að samþykkja aldrei bótauppgjör nema með fyrirvara. Konan í þessu máli gerði einmitt það og hann skipti sköpum.

Ef þú vilt fara yfir þín mál er lítið mál að panta tíma hjá okkur á www.esl.is

Starfshópur stjórnvalda um gervigreind skilaði skýrslu 9. október með 69 tillögum um nýtingu gervigreindar á Íslandi. Ge...
12/10/2026

Starfshópur stjórnvalda um gervigreind skilaði skýrslu 9. október með 69 tillögum um nýtingu gervigreindar á Íslandi. Gervigreind er orðin hluti af daglegu starfi margra, líka í lögfræði. Hún getur flýtt fyrir yfirferð gagna og gerð draga, en hún getur líka vísað í lagaákvæði eða dóma sem eru ekki til.

Margir íslenskir lögmenn nota gervigreind sem verkfæri, en það er betra að einhver í raunheimum lesi allt yfir áður en það er birt eða því skilað í lokaafurð sem fer frá viðkomandi.

Sama þumalputtaregla á við um notkun einstaklinga á spjallmennum. Það er betra að líta á niðurstöður sem snúa að lagalegum rétti sínum sem byrjunina – en ekki endastöð – og láta svo einhvern holdi klæddan fara yfir málið með sér í kjölfarið.

Ef þú ert í þessari stöðu, þá er einfalt að bóka tíma hjá okkur á www.esl.is

Í vikunni var umræða um hvort gervigreind ætti að koma nálægt lokaafurð fyrirtækja sem hana nota. Eftir því sem næst ver...
21/09/2026

Í vikunni var umræða um hvort gervigreind ætti að koma nálægt lokaafurð fyrirtækja sem hana nota. Eftir því sem næst verður komist var niðurstaðan sú að málið snúist alltaf frekar um dómgreind en gervigreind.

Við erum sammála.

Í störfum lögmanna getur gervigreind nýst við að lesa í gegnum gögn, drega saman dóma og aðrar réttarheimildir og jafnvel setja upp tímalínu -- allt verkefni sem geta annars tekið heilu og hálfu dagana.

En það eru líka ansi margar takmarkanir á notkun gervigreindar í störfum þar sem gjarnan er unnið með mjög viðkvæm gögn. Þannig að lögmenn geta ekki látið gervigreind skrifa það sem þeir senda á endanum frá sér -- og því síður geta lögmenn látið gervigreind bera ábyrgð á störfum sínum!

Ábyrg notkun á gervigreind felur það í sér að hvert einasta orð er lesið yfir af manneskju sem svo staðreynir hverja tilvísun og setur svo nafnið sitt undir. Með því að nota gervigreind með þessum hætti má lækka kostnaðinn fyrir viðskiptavininn, án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar.

Ef þú ert að leita lögmannsaðstoðar og færð tilboð í þjónustuna skaltu spyrja einnar spurningar:

Hver les yfir? Svarið segir þér meira en tímagjaldið...

ESJA Legal er lögmannsstofa í Reykjavík með víðtæka reynslu af alhliða lögfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Persónuleg þjónusta, fagleg vinnubrögð og traust ráðgjöf — hafðu samband í dag. Law firm in Iceland providing comprehensive legal services ...

Hvað gerist þegar ástfangið fólk gleymir að gera kaupmála? 💍⚖️Það er ekkert sérstaklega rómantískt að ræða lögfræðilega ...
09/09/2026

Hvað gerist þegar ástfangið fólk gleymir að gera kaupmála? 💍⚖️

Það er ekkert sérstaklega rómantískt að ræða lögfræðilega hluti þegar maður er brjálæðislega ástfanginn og lífið leikur við þig og ástina þína. Í huga margra þarf ekkert að pæla í einhverjum fasteignum eða öðrum verðmætum sem maður kann að eiga, þegar gengið er í það heilaga. Því miður er raunveruleikinn ekki alveg svo einfaldur, eins og lesa má um í dómi Landsréttar nr. 370/2026 sem kveðinn var upp 31. ágúst sl.

Rómantíkin þokar nefnilega fyrir lögfræðinni, þegar gamanið fer að kárna. Ef hjón gera ekki kaupmála fyrir hjónabandið (eða á meðan því stendur), er meginreglan sú að eignum beggja skal skipt til helminga. Í fyrrnefndum dómi kom fram hversu erfitt það getur reynst, að sannfæra dómstóla um að ekki eigi að skipta jafnt á milli aðila; að til dæmis eigi að halda ákveðnum fasteignum eða jafnvel fyrirtækjum aðeins í eigu þess aðila sem átti fyrir hjúskapinn.

Dómurinn bendir á að oft dugar ekki að vitna í gamlar munnlegar útskýringar eða að aðeins annar aðilinn hafi verið skráður eigandi fyrirtækis ef ekki var gerður skriflegur kaupmáli, sem síðan var skráður hjá sýslumanni. Eina örugga leiðin til þess að koma í veg fyrir vandræði seinna meir er að muna gullnu regluna: Í upphafi skyldi endinn skoða! Kaupmáli er í raun ekkert annað en skynsamleg trygging og skýr samningur sem veitir báðum aðilum öryggi og frið í sálina -- og ef hjónabandið heldur um aldur og ævi, reynir aldrei á kaupmálann og báðir aðilar hjónabandsins njóta ávaxta eignanna, sem annars eru séreignir.📝✨

Address

Hlíðarfótur 15
Reykjavík
102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ESJA Legal ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby law practices