Gengislán.is

Call Directions Website

Gengislán.is Endurreiknum lán og sækjum á hendur lánastofnunum.

Þjónusta Gengislána.is kemur til móts við lántakendur gengistryggðra lána og býður þeim upp á ódýra og skilvirka leið til að fá botn í sín mál.

Við bjóðum viðskiptavinum að koma með öll nauðsynleg gögn og fá gengistryggða lánið sitt endurreiknað í samræmi við dómafordæmi Hæstaréttar. Eftir það fer lánið í innheimtu hjá lögmanni sem sækir mál á hendur viðkomandi lánastofnun til viðurkenningar á réttri stöðu lánsins samkvæmt fyrirliggjandi endurútreikningi.

Markmiðið okkar er að viðskiptavinurinn fái skýrar upplýsingar um það í hvaða krónutölu skuld hans stendur – eða, ef um uppgert lán er að ræða, hvaða fjárhæð hann hefur ofgreitt og á því rétt á að fá til baka. Að þessu frágengnu á viðskiptavinurinn að vera á ákveðnum byrjunarreit og getur því tekið nýjar ákvarðanir um sín lána- og fjármál.

🌟 Lögmennska í hnotskurn – Hagnýtt námskeið fyrir lögmenn og laganema! 🌟   Verð aðeins 39.000 kr og innifalið er matur, ...
05/01/2026

🌟 Lögmennska í hnotskurn – Hagnýtt námskeið fyrir lögmenn og laganema! 🌟 Verð aðeins 39.000 kr og innifalið er matur, drykkir, glærupakki og aðgangur að gagnlegu formasafni.

Skráning á [email protected].

Dagana 14.-16. janúar verður kraftmikið námskeið haldið fyrir þá sem vilja skerpa á færni sinni í lögmannsstörfum en námskeiðið hefur verið haldið áður við góðar undirtektir.

Á námskeiðinu verður farið yfir praktísk atriði í einkamálum, sakamálum og öðrum lykilverkefnum lögmanna eins og meðferð þrotabúa.

Lögð verður áhersla á raunverulega framkvæmd lögmannsstarfsins, engin lögfræðikennsla, heldur lifandi og hagnýt nálgun.

Námskeiðið heldur Jóhannes S. Ólafsson hrl., eigandi lögmannstofu síðan 2013 með yfir 100 dómsmál að baki. Jóhannes leggur áherslu á opna og heiðarlega umræðu og praktíska innsýn og er tilbúinn að svara öllum spurningum.

Þetta er tækifærið til að styrkja færni þína, tengjast öðrum í faginu og læra af reynslubolta í lögmannsstörfum. Deildu þessu með kollegum og skráðu þig í dag!

Address

Garðastræti 36
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 18:00
Tuesday 08:00 - 18:00
Wednesday 08:00 - 18:00
Thursday 08:00 - 18:00
Friday 08:00 - 18:00

Telephone

546 2505

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gengislán.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share