25/09/2026
BBA//Fjeldco hefur gengið frá samkomulagi þess efnis að Ragnar Guðmundsson gangi til liðs við eigendahóp BBA//Fjeldco. Ragnar var um árabil stjórnarformaður og eigandi hjá ADVEL, og hefur verið einn af leiðandi lögfræðingum landsins á sviði skatta- og fyrirtækjalögfræði. Ragnar verður verulegur liðsauki fyrir BBA//Fjeldco og innkoma hans er liður í áframhaldandi vaxtarhug félagsins.
Ragnar starfaði hjá ADVEL árin 2008 til 2014, því næst hjá Deloitte til 2016 og SKR lögfræðiþjónustu frá 2016 til 2019, áður en hann sneri aftur til ADVEL árið 2019 sem eigandi og stjórnarformaður. Ragnar lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2008 og MBA-gráðu frá IESE Business School árið 2016.
Á sama tíma hefur félagið styrkt málflutningssvið sitt enn frekar þar sem Einar Brynjarsson hefur bæst við í eigendahóp BBA//Fjeldco lögmanna, en hann hefur starfað hjá félaginu um árabil. Einar hefur sinnt málflutningi í rúman áratug og hefur málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum og Landsrétti. Hann lauk MA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Helstu sérsvið Einars eru málflutningur og réttarfar, félaga- og fyrirtækjaréttur, gjaldþrotaskiptaréttur og bótaréttur.
Þá hefur félagið jafnframt ráðið til sín þrjá nýja verkefnastjóra, þau Birgittu Sögu Jónsdóttur, Arnar Heimi Lárusson og Rán Ólafsdóttur.
Birgitta kemur til BBA//Fjeldco frá ADVEL þar sem hún hefur starfað frá árinu 2022, að miklu leyti með Ragnari Guðmundssyni. Hún hefur einkum reynslu af lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki, m.a. við fjármögnun fyrirtækja og við kaup og sölu fyrirtækja, en einnig á sviði félagaréttar, samningaréttar, skattaréttar og Evrópuréttar. Birgitta er með LL.M. gráðu í evrópskri og alþjóðlegri viðskiptalögfræði frá Háskólanum Jean Moulin Lyon III í Frakklandi og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Arnar starfaði áður hjá MAGNA Lögmönnum sem lögmaður og verkefnastjóri þar sem hann sinnti lögfræðilegri ráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki og einstaklinga, einkum á sviðum félagaréttar, eignarréttar, stjórnsýsluréttar og samkeppnisréttar. Arnar lauk LL.M. gráðu í viðskiptalögfræði frá Duke University School of Law nú í ár þar sem hann útskrifaðist með ágætiseinkunnina Magna Cum Laude. Hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2021 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum sama ár.
Rán bætist í skattateymi félagsins en hún hefur sérhæft sig á sviði virðisaukaskatts. Rán hefur mikla reynslu af skattaráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja ásamt rekstri flókinna ágreiningsmála gagnvart skattyfirvöldum. Hún starfaði síðast hjá KPMG Law og þar áður hjá Skattinum um árabil. Rán lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og meistaragráðu í skattarétti og reikningsskilum árið 2019. Hún hefur jafnframt sinnt aðstoðarkennslu í gerð og greiningu ársreikninga við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2018.
Í framhaldi af fjárfestingu AGRD í BBA//Fjeldco heldur félagið áfram að byggja upp breiðan hóp sérfræðinga til að þjónusta viðskiptavini í flóknum og krefjandi verkefnum.
„Við erum afar stolt og ánægð að bjóða þennan öfluga hóp sérfræðinga velkominn til liðs við BBA//Fjeldco. Ragnar er mikill liðsauki fyrir félagið enda einn öflugasti sérfræðingur landsins á sviði skatta- og fyrirtækjaréttar, með breiðan hóp viðskiptavina, og með tilkomu hans styrkjum við þjónustu okkar enn frekar. Fjárfesting AGRD í BBA//Fjeldco gerir okkur kleift að styrkja félagið á fjölþættari hátt en áður, þ.m.t. með því að fá til liðs við okkur teymi eða fyrirtæki ef slíkar einingar fara saman við áætlanir og gildi félagsins. Þessi hópur sem nú bætist í lið okkar er sannarlega skref í þeirri vegferð. Við leggjum ríka áherslu á að BBA//Fjeldco samanstandi af hópi sem sameinar sérfræðiþekkingu, lausnamiðaða nálgun og drifkraft til að mæta þörfum íslensks viðskiptalífs,“ segir Halldór Karl Halldórsson, faglegur framkvæmdastjóri BBA//Fjeldco.
„Það sem heillar mig sérstaklega við BBA//Fjeldco og AGRD er metnaðurinn til að byggja upp öfluga, alþjóðlega lögfræði- og ráðgjafarstarfsemi og viljinn til að þróa hvernig slík þjónusta er veitt. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á mótum lögfræði og viðskipta og sé hér mjög spennandi tækifæri til að byggja áfram á þeirri reynslu, bæði fyrir íslenska og alþjóðlega viðskiptavini. Ég hlakka mikið til að taka þátt í næsta áfanga í uppbyggingu BBA//Fjeldco“ er haft eftir Ragnari Guðmundssyni.