02/11/2026
Sævar Þór og Partners er annað árið í röð meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem standast öll skilyrði í greiningarvinnu Creditinfo og hefur verið útnefnt Framúrskarandi fyrirtæki 2026.
Við erum afar stolt yfir að hljóta þessa viðurkenningu á nýjan leik og þakklát okkar samhenta teymi og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir krefjandi verkefnum.
Framúrskarandi fyrirtæki er vottun Creditinfo til þeirra íslensku fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á traustum stoðum og hafa náð framúrskarandi árangri í rekstri.