Landslög-lögfræðistofa

Call Directions Website Contact the practice

Landslög-lögfræðistofa Landslög veita alhliða lögfræðiþjónustu, gæta hagsmuna og koma fram fyrir hönd umbjóðenda

Kærunefnd útboðsmála fellir úr gildi ákvörðun Nýs Landspítala um val á tilboðiNýverið kvað kærunefnd útboðsmála upp úrsk...
26/10/2026

Kærunefnd útboðsmála fellir úr gildi ákvörðun Nýs Landspítala um val á tilboði

Nýverið kvað kærunefnd útboðsmála upp úrskurð sinn í máli Rafmiðlunar hf. gegn Nýjum Landspítala ohf. Málavextir voru þeir að Nýi Landspítalinn ohf. óskaði eftir tilboðum í frágang á rafkerfum spítalans. Í útboðinu var gerð krafa um að bjóðendur hefðu reynslu af sambærilegu verki. Nýi Landspítalinn ohf. tók tilboði þriggja félaga sem buðu sameiginlega í verkið. Kærandi taldi aftur á móti að félögin uppfylltu ekki kröfur útboðsgagnanna um reynslu og fjárhagslegt hæfi og kærði því niðurstöðuna til kærunefndar útboðsmála. Í úrskurði kærunefndarinnar var lagt til grundvallar að þau verk sem félögin hefðu tilgreint til stuðnings reynslu sinni uppfylltu ekki skilyrði útboðsgagna um að teljast sambærileg verk, auk þess sem framsetning áskilins verkefnalista hefði verið í ósamræmi við skilmála útboðsins. Nýja Landspítalanum ohf. hefði þar af leiðandi verið óheimilt að velja tilboðið og var ákvörðunin ógilt.

Jóhannes Karl Sveinsson og Magnús Ingvar Magnússon lögmenn gættu hagsmuna kæranda í málinu.

Úrskurðinn má lesa hér:https://www.landslog.is/wp-content/uploads/2026/10/U%CC%81rskur%C3%B0ur-i%CC%81-ma%CC%81li-nr.-42-2026.pdf

Fasteignamál í brennidepli á ráðstefnu MFÍÍ síðustu viku fór fram ráðstefna á vegum Matsmannafélags Íslands um upplýsing...
25/09/2026

Fasteignamál í brennidepli á ráðstefnu MFÍ

Í síðustu viku fór fram ráðstefna á vegum Matsmannafélags Íslands um upplýsingagjöf og ástandsmat vegna sölu fasteigna. Markmið ráðstefnunnar var að efna til umræðu um fasteignagallamál hér á landi og endurvekja umfjöllun um hvort gera eigi ástandsskoðanir fasteigna að skyldu við sölu þeirra í því skyni að fækka ágreiningsmálum vegna galla.

Á ráðstefnunni héldu erindi ýmsir sérfræðingar og hagsmunaaðilar úr ólíkum áttum og með fjölbreytt sjónarhorn á viðfangsefnið. Sara Bryndís, lögmaður hjá Landslögum, fjallaði um ágreiningsmál í fasteignakaupum og nýlega dómaframkvæmd.

Lögmenn Landslaga aðstoða fjölmarga kaupendur og seljendur á hverju ári með hvers konar ágreiningsmál vegna fasteignakaupa.

Grein um misnotkun á markaðsráðandi stöðu„Markaðsráðandi fyrirtækjum er bannað að raska samkeppni með háttsemi sinni sam...
17/09/2026

Grein um misnotkun á markaðsráðandi stöðu

„Markaðsráðandi fyrirtækjum er bannað að raska samkeppni með háttsemi sinni samkvæmt 11. gr. samkeppnislaga. Sú lagagrein, og fyrirmynd hennar í evrópskum samkeppnisrétti, er tvær málsgreinar en inntak hennar hefur þróast vítt og breitt á undanförnum áratugum í takt við m.a. úrlausnir samkeppnisyfirvalda og réttarframkvæmd. En er með einhverjum móti hægt að auka skýrleika og fyrirsjáanleika við beitingu samkeppnisreglna um misnotkun á markaðsráðandi stöðu og stuðla að samræmi þeirra? Veita fyrirtækjum meiri vissu fyrir því hvort það hafi slíka stöðu, og þá á hvaða mörkuðum, þannig að þau geti sjálf lagt mat á stöðu sína? Jafnframt að varpa skýrara ljósi á það hvaða háttsemi fyrirtækja í þeirri stöðu er lögmæt, og hver ekki?“

Þannig hefst ný grein eftir Gunnar Atla Gunnarsson, lögmann og eiganda á Landslögum, sem birtist í prentútgáfu Viðskiptablaðsins í gær. Í greininni er fjallað um nýjar leiðbeiningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem gerð er atlaga að því að koma til móts við þessar spurningar. Í greininni er varpað ljósi á nokkrar markverðar breytingar í leiðbeiningunum og þýðingu þess fyrir íslenskan samkeppnisrétt. Þá segir í niðurlagi greinarinnar:

„Samandregið má segja að margt í leiðbeiningunum er til þess fallið að styðja við meginmarkmið þeirra um að auka skýrleika og fyrirsjáanleika fyrirtækja. Það eitt og sér er framfaraskref. Í öllu falli er fullt tilefni fyrir fyrirtæki sem kunna að hafa markaðsráðandi stöðu á tilgreindum mörkuðum að kynna sér leiðbeiningarnar og taka mið af þeim í sinni starfsemi.“

Greinina má jafnframt nálgast hér:

„Í öllu falli er fullt tilefni fyrir fyrirtæki sem kunna að hafa markaðsráðandi stöðu á tilgreindum mörkuðum að kynna sér leiðbeiningarnar og taka mið af þeim í sinni starfsemi.“

Landslög á norrænum ráðstefnum um hugverkaréttÍ liðinni viku fóru fram á Íslandi tvær norrænar ráðstefnur um hugverkarét...
07/09/2026

Landslög á norrænum ráðstefnum um hugverkarétt

Í liðinni viku fóru fram á Íslandi tvær norrænar ráðstefnur um hugverkarétt þar sem Jón Gunnar Ásbjörnsson, hæstaréttarlögmaður og eigandi á Landslögum, tók virkan þátt.

Á ráðstefnu á vegum norræna hugverkaréttartímaritsins NIR (Nordiskt Immateriellt Rättsskydd) flutti Jón Gunnar erindi og tók þátt í pallborðsumræðum um álitaefni á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar sem tengjast hugverkaréttindum yfir landamæri (Cross-border / Transnational IP Issues in Private International Law).

Jón Gunnar tók einnig þátt í norræna höfundaréttarþinginu, XX Nordic Copyright Symposium, sem haldið var í Hörpu dagana 2.–4. september. Þar stýrði hann umræðum sérfræðinga um það hvernig meta beri hvort úttak sem verður til með aðstoð gervigreindar feli í sér brot gegn höfundarétti (The Output: How to make the infringement assessment of the output produced by or with the assistance of artificial intelligence).

Á ráðstefnunum komu saman fræðimenn, lögmenn og aðrir sérfræðingar frá Norðurlöndunum og víðar til að ræða ýmis álitaefni sem nú eru ofarlega á baugi á sviði hugverkaréttar, meðal annars áhrif gervigreindar á höfundarétt. Þátttaka Landslaga í ráðstefnunum er liður í því að fylgjast með þróun hugverkaréttar og taka þátt í faglegri umræðu á sviðinu, bæði hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi.

Fyrr í mánuðinum tóku Landslög á móti keppendum í Norrænu málflutningskeppninni. Landslög hafa sterka tengingu við keppn...
18/06/2026

Fyrr í mánuðinum tóku Landslög á móti keppendum í Norrænu málflutningskeppninni. Landslög hafa sterka tengingu við keppnina en Garðar Garðarsson, einn stofnenda Landslaga, var meðal upphafsmanna að því að íslenskir laganemar hófu að taka þátt í keppninni á sínum tíma. Landslög óska liði lagadeildar Háskóla Íslands, Club Lögberg, til hamingju með frábæran árangur í keppninni. Framtíðin er ykkar!

Ritstjórn Úlfljóts skrifar Fulltrúar nokkurra helstu lagadeilda við háskóla á Norðurlöndunum komu nýverið saman á Íslandi til þátttöku í Norrænu málflutningskeppninni, sem haldin er árlega. Að þess…

Ársfundur Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands var haldinn þann 15. apríl síðastl...
16/04/2026

Ársfundur Rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands var haldinn þann 15. apríl síðastliðinn. Viðar Lúðvíksson, lögmaður hjá Landslögum, er stjórnarmaður í rannsóknasetrinu og stýrði fundinum.

Address

Borgartún 26, 5. Hæð
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545202900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landslög-lögfræðistofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Landslög-lögfræðistofa:

Shortcuts

Share