30/05/2025
Karol Walejko, fulltrúi hjá OPUS lögmönnum, ritar grein í nýjasta tölublað Úlfljóts.
Í næsta tölublaði mun birtast grein eftir Karol Walejko. Grein þessi fjallar um mat á orsakatengslum á milli líkamstjóns og umferðar- eða vinnuslysa. Farið er yfir helstu sjónarmið og viðmið sem koma til greina við slíkt mat, miðað við gildandi rétt og nýlega úrskurða- og dómaframkvæmd.
Ekki öll þau sjónarmið og viðmið sem skipta máli í framkvæmd eru endilega
mjög áberandi nema litið sé heildstætt á fjölda mála þar sem deilt hefur verið
um orsakatengsl á milli líkamstjóns og umferðar- eða vinnuslyss. Í mörgum
málum er þannig vísað til einhverra þessara sjónarmiða án þess að fara nánar út í þýðingu hvers fyrir sig. Aðferðafræðin er fremur sú að vísa til þeirra og komast að niðurstöðu út frá atviksbundnu og heildstæðu mati.
Af úrskurða- og dómaframkvæmd má hins vegar með ítarlegri rannsókn ráða að sum þessara sjónarmiða og viðmiða vegi þyngra heldur en önnur, þó að það sé ekki tekið fram berum orðum. Þannig má t.d. sjá að tjónþoli styrkir sönnunarstöðu sína verulega ef hann leitar til læknis fljótlega eftir slys, lýsir þeim einkennum sem hann telur að rekja megi til viðkomandi slyss og tengir þau við slysið. Tjónþoli sem ekki gætir að þessu og öðrum þeim atriðum sem rakin eru í grein þessari gerir sönnunarstöðu sína töluvert erfiðari en hún annars væri.
Hægt er að skrá sig í áskrift með því að senda tölvupóst á [email protected]