Fasteignamál Lögmannsstofa

Directions Website Contact the practice

Fasteignamál Lögmannsstofa Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fasteignamál Lögmannsstofa, Lawyer & Law Firm, Suðurlandsbraut 20, 2. hæð, Reykjavík.

Fasteignamál Lögmannsstofa sérhæfir sig í öllum lögfræðimálum tengdum fasteignum, svo sem gallamálum, skipulags- og byggingarmálum, fjöleignarhúsamálum og húsaleigumálum.

Síðustu rúmu 20 árin hefur verið töluvert um galla í nýbyggingum. Fæst þessara mála rata inn á borð dómstóla. Ástæðurnar...
12/09/2026

Síðustu rúmu 20 árin hefur verið töluvert um galla í nýbyggingum. Fæst þessara mála rata inn á borð dómstóla. Ástæðurnar eru margar, svo sem það semst í málunum að einhverju leyti eða öllu, það er ekkert á neinn að sækja eða kröfurnar eru fyrndar. Réttur kaupenda er því miður alltof oft eingöngu í orði en ekki á borði enda bæði kostnaðarsamt og tímafrekt fyrir kaupendur að sækja rétt sinn og oft næst lítið sem ekkert upp í kröfur þeirra, t.d. vegna skamms fyrningartíma, seljandi er ekki borgunarmaður fyrir göllum og starfsábyrgðartryggingar takmarkaðar og fjárhæðir þeirra lágar. Sem dæmi má nefna eru eingöngu lögbundnar starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra og hönnuða en ekki iðnmeistara þó löggjafinn geri ráð fyrir bótaskyldu þeirra. Þá er það ekki alltaf svo að allir gallar séu bættir úr þessum tryggingum, auk þess sem fjárhæðir þeirra eru allt of lágar enda upphæðin sú sama hvort sem um 2ja íbúa hús er að ræða eða 100 íbúða.

Síðustu rúmu 20 árin hefur verið töluvert um galla í nýbyggingum. Fæst þessara mála rata inn á borð dómstóla. Ástæðurnar eru margar, svo sem það semst í málunum að einhverju leyti eða öllu, það er ekkert á neinn að sækja eða kröfurnar eru fyrndar. Seljendur nýbygging...

Það vefst oft fyrir eigendum fjöleignarhúsa að átta sig á því hversu margir eigendur þurfa að samþykkja tiltekna ákvörðu...
22/06/2026

Það vefst oft fyrir eigendum fjöleignarhúsa að átta sig á því hversu margir eigendur þurfa að samþykkja tiltekna ákvörðun til að hún sé lögmæt. Þetta er skiljanlegt því reglur laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús um þetta efni eru margar og flóknar og algengt að túlkun þeirra valdi ágreiningi milli eigenda í fjöleignarhúsum.

Það vefst oft fyrir eigendum fjöleignarhúsa að átta sig á því hversu margir eigendur þurfa að samþykkja tiltekna ákvörðun til að hún sé lögmæt. Þetta er skiljanlegt því reglur laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús um þetta efni eru margar og flóknar og algengt að túlkun þei...

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar um tímabundna leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt e...
03/05/2026

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar um tímabundna leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar, þ.e. hvort segja megi upp slíkum samningum, hvað gerist ef leigjandinn er áfram í húsnæðinu að leigutíma loknum og um forgangsrétt leigjanda til áframhaldandi leigu húsnæðis að leigutíma loknum.

Leigusamningar geta verið tímabundir eða ótímabundir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Í síðasta pistli fjallaði ég um uppsögn ótímabundinna leigusamninga um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar. Í þessum pistli ætla ég að fjalla um tí...

Leigusali getur einungis sagt upp ótímabundnum leigusamningi um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar ...
26/04/2026

Leigusali getur einungis sagt upp ótímabundnum leigusamningi um íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar í ákveðnum tilvikum og getur orðið bótaskyldur ef skilyrði uppsagnar eru ekki fyrir hendi. Leigusali þarf að tilgreina ástæðu uppsagnar og nota stöðluð tilkynningareyðublöð HMS við uppsögnina. Ef leigjandi telur að skilyrði til uppsagnarinnar séu ekki fyrir hendi getur hann borið ágreining um uppsögnina undir kærunefnd húsamála.

Leigusamningar eiga að vera skriflegir og geta þeir verið tímabundir eða ótímabundir, þ.e. gerðir til ákveðins tíma eða ekki. Ef aðilar hafa vanrækt að gera skriflegan leigusamning teljast þeir hafa gert ótímabundinn leigusamning. Ef segja á upp slíkum munnlegum leigusamningi þ...

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar um viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum
21/04/2026

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar um viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum

Þegar farið er í framkvæmdir er mikilvægt að eigendur fjöleignarhúsa gæti réttra aðferða við þær. Boða þarf til húsfundar með lögmætum hætti. Í fundarboði þarf að tilgreina þau mál sem tekin verða fyrir á fundinum og meginefni tillagna. Ekki er hægt að taka mál til a...

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar hér um nýlegar breytingar á lögum er varða svokallaðar Airbnb íbúðir.
04/04/2026

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður fjallar hér um nýlegar breytingar á lögum er varða svokallaðar Airbnb íbúðir.

Töluverð umræða hefur verið síðustu árin að allt of margar íbúðir séu notaðar í Airbnb leigu til ferðamanna og nauðsynlegt sé að stemma stigu við útleigu þeirra svo hægt sé að fjölga íbúðum til búsetu. Þá sé töluvert um að boðið sé upp á skammtímaleigu án skr...

Address

Suðurlandsbraut 20, 2. Hæð
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fasteignamál Lögmannsstofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Fasteignamál Lögmannsstofa:

Shortcuts

Share