Land lögmenn

Call Directions Website Contact the practice

Land lögmenn LAND lögmenn var stofnað haustið 2012. Frá og með þeim tíma hafa einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök og opinberar stofnanir leitað til okkar.

Markmið Land Lögmanna er ávallt að veita persónulega, áreiðanlega og árangursríka þjónustu. Lögmenn Land Lögmanna búi yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á ólíkum réttarsviðum. Þá hafa lögmenn okkar flutt fjölda máli á öllum dómstigum, þ.e. fyrir Héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti.

Oddgeir Einarsson, hæstaréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum hefur gætt hagsmuna Helga Bjarts í málinu. Hann kveður æskileg...
20/04/2026

Oddgeir Einarsson, hæstaréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum hefur gætt hagsmuna Helga Bjarts í málinu. Hann kveður æskilegt að þau sem vilji mynda sér skoðun á málinu gefi sér tíma fyrst til þess að lesa umræddan héraðsdóm þar sem farið er yfir staðreyndir málsins.

Umfjöllun fjölmiðla um mál Helga Bjarts Þorvaldssonar sem dæmdur var fyrir kynferðislega áreitni gegn dreng í Hafnarfirði hefur vægast sagt verið villandi að sögn verjanda Helga. Hann segist sjá sig knúinn til að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu vegna þess se...

Nýlega féll áhugaverður dómur í héraðsdómsmáli nr. E-1222/2025 þar sem fjallað var m.a. um svokallað "kennitöluflakk" og...
16/04/2026

Nýlega féll áhugaverður dómur í héraðsdómsmáli nr. E-1222/2025 þar sem fjallað var m.a. um svokallað "kennitöluflakk" og þá mögulegu persónulegu ábyrgð hluthafa sem skapast getur við slíkar aðstæður. Í málinu var eigandi ferðaþjónustufyrirtækis látinn sæta persónulegri ábyrgð vegna skuldbindinga eldri félaga sem höfðu verið tekin til gjaldþrotaskipta. Eiríkur Gunnsteinsson, hæstaréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum rak málið fyrir hönd kröfuhafa.

Í málinu hafði einstaklingur, sem var jafnframt eini hluthafi og stjórnandi nokkurra einkahlutafélaga, stuðlað að því að ógreiddar kröfur væru með markvissum hætti skildar eftir í tilteknum einkahlutafélögum sem voru síðar voru tekin til gjaldþrotaskipta. Samhliða stofnaði viðkomandi einstaklingur ítrekað ný einkahlutafélög sem tóku að sinna sama rekstri og áður var rekinn í eldri félögum. Nýtti hann áfram viðskiptavild fyrri félaga, þ.á.m. jákvæðar umsagnir á Tripadvisor, nýja félaginu til hagsbóta. Dómurinn taldi þannig sannað að reksturinn héldi áfram undir nýjum kennitölum og að mestu óbreyttur, nema að skuldir og ógreiddar kröfur sátu eftir í hinum eldri félögum. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að slíkt væri ólögmætt og var eigandi félaganna látinn bera persónulega ábyrgð á ógreiddum kröfum.

Nýverið leit Thelma Christel Kristjánsdóttir hjá Jónsbók til okkar á skrifstofu LAND lögmanna og fór yfir helstu nýjunga...
12/02/2026

Nýverið leit Thelma Christel Kristjánsdóttir hjá Jónsbók til okkar á skrifstofu LAND lögmanna og fór yfir helstu nýjunga og kosti gervigreindarforritsins en notkun gervigreindar í lögmannsstörfum er einn liður í því að bæta gæði og þjónustustig til okkar viðskiptavina og umbjóðenda.

Starfsfólk er ein mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis og því er áreiðanleg sérfræðiráðgjöf á sviði íslensks vinnurétta...
30/01/2026

Starfsfólk er ein mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis og því er áreiðanleg sérfræðiráðgjöf á sviði íslensks vinnuréttar afar mikilvæg hverjum vinnustað. Í fjöldamörg ár hafa lögmenn LAND veitt trausta lögfræðiráðgjöf og hagnýta aðstoð á öllum helstu sviðum vinnuréttar, en lögmenn okkar veita reglulega ráðgjöf til bæði innlendra sem og erlendra fyrirtækja, atvinnurekenda, opinberra aðila, einstaklinga sem og stéttarfélaga um fjölbreytt málefni - allt frá gerð nýrra ráðningarsamninga, til undirbúnings starfsloka- og gerð starfslokasamninga, ásamt því að veita sérhæfða aðstoð við viðkvæm starfsmannamál og aðstoð við framkvæmd uppsagna þar sem sérstaka aðgát ber að viðhafa.

Þá hafa lögmenn LAND aðstoðað við hagsmunagæslu í vinnuréttardeilum og hafa í því sambandi reynslu af því að aðstoða bæði vinnuveitendur, launþega sem og launþegahreyfingar hér á landi. Lögmenn LAND búa þannig yfir víðtækri reynslu af málflutningi og hafa komið fram fyrir hönd skjólstæðinga sinna fyrir öllum dómstigum, þar á meðal Hæstarétti Íslands.
-
(English below)
-
Employees are the most important part of any company, making reliable access to expert advice on Icelandic employment law essential. For years, LAND’s Employment Law Team has provided trusted legal advice and practical support across the full spectrum of Icelandic employment law and the regulatory framework governing the Icelandic labor market.

Our team regularly advises both domestic and foreign businesses, employers, governmental organisations, individuals, and labor unions on a wide range of matters - from onboarding new employees through the drafting of employment agreements and benefit packages, to preparing mutual separation agreements, managing sensitive employment issues, and handling redundancy processes where particular care and compliance are required.

Effective representation in employment disputes is equally important. Members of LAND’s Employment Law Team have extensive litigation experience and have represented clients before all levels of the Icelandic court system, including the Supreme Court of Iceland, as well as in negotiated settlements.

FÓLKIÐ OKKARÍ haust gekk Grímur Sigurðarsson, hæstaréttarlögmaður, til liðs við LAND lögmenn. Grímur býr yfir tuttugu ár...
05/01/2026

FÓLKIÐ OKKAR

Í haust gekk Grímur Sigurðarsson, hæstaréttarlögmaður, til liðs við LAND lögmenn. Grímur býr yfir tuttugu ára reynslu í lögmennsku og hefur starfað bæði í þágu einkageirans, innan fyrirtækja og á fjármálamörkuðum. Hann hefur jafnframt unnið fyrir innlendar og alþjóðlegar stofnanir, nú síðast fyrir Seðlabanka Íslands og Alþjóðagreiðslubankann (Bank for International Settlements).

Grímur stofnaði sína fyrstu lögmannsstofu árið 2006 og hefur síðan veitt einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf á fjölbreyttum sviðum lögmennskunnar. Hann lauk LL.M.-námi frá Háskólanum í Tórínó og hefur haft leyfi sem verðbréfamiðlari frá árinu 2008. Í störfum sínum leggur hann áherslu á vandaða ráðgjöf, traust samstarf og lausnamiðaða nálgun fyrir viðskiptavini sína.

LAND lögmenn óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir samstarfið á árinu ...
22/12/2025

LAND lögmenn óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir samstarfið á árinu og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi ári 🎄🎄
Grímur Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Oddgeir Einarsson, Eiríkur Gunnsteinsson, Sigurður Freyr Sigurðsson, Hildur Sólveig Pétursdóttir, Atli Már Ingólfsson og Jóna Vestfjörð Hannesdóttir.
Á myndina vantar Sverri Halldórsson.

Jólakaffi LAND lögmanna
17/12/2025

Jólakaffi LAND lögmanna

Landsréttur þyngdi í gær dóm yfir tveimur karlmönnum fyrir nauðgun. Voru þeir báðir dæmdir í þriggja ára fangelsi en höf...
12/12/2025

Landsréttur þyngdi í gær dóm yfir tveimur karlmönnum fyrir nauðgun. Voru þeir báðir dæmdir í þriggja ára fangelsi en höfðu áður hlotið tveggja og hálfs árs dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá voru dæmdar bætur til brotaþola hækkaðar verulega. Sigurður Freyr Sigurðsson, landsréttarlögmaður hjá LAND lögmönnum gætti hagsmuna brotaþola í málinu.

Nauðgunardómur yfir tveimur karlmönnum var þyngdur í Landsrétti í dag. Við ákvörðun refsingar hafi Landsréttur litið til þess að mennirnir notfærðu sér ölvun konunnar og brutu með grófum og sérlega ófyrirleitnum hætti gegn kynfrelsi hennar.

Nú fer að verða ansi jólalegt um að litast hér hjá okkur LAND lögmönnum í Hlíðasmára 🎄
26/11/2025

Nú fer að verða ansi jólalegt um að litast hér hjá okkur LAND lögmönnum í Hlíðasmára 🎄

Á Íslandi hefur færst í vöxt að fólk kjósi frekar að búa í skráðri sambúð en ganga í hjónaband. Ástæðurnar geta verið ma...
19/11/2025

Á Íslandi hefur færst í vöxt að fólk kjósi frekar að búa í skráðri sambúð en ganga í hjónaband. Ástæðurnar geta verið margvíslegar, en ein þeirra kann að vera sú að komast hjá réttaráhrifum sem fylgja hjúskap og hjúskaparlögum, svo sem helmingaskiptareglu hjúskaparlaga, rétt til setu í óskiptu búi eða erfðaréttindum sem hjón njóta.

Ólíkt því sem gildir um hjón, eru engin sérlög til staðar um fjármál óvígðs sambúðarfólks eða skiptingu eigna við slit sambúðar. Þrátt fyrir framangreint hafa þróast ákveðnar meginreglur í dómaframkvæmd sem litið er til þegar sambúð lýkur. Þar skipta máli atriði á borð við lengd sambúðar, eignamyndun á sambúðartíma, fjárhagsleg samstaða og hvort sambúðaraðilar eigi sameiginleg börn.

Við sambúðarslit geta auðveldlega komið upp flókin álitaefni, sérstaklega þegar um langa sambúð er að ræða og veruleg eignamyndun hefur átt sér stað. Þá getur einnig skipt máli hvort að annar aðilinn hafa sinnt störfum utan heimilis á meðan hinn hafi aðallega sinnt barnauppeldi eða heimilisstörfum.

Til þess að koma í veg fyrir ágreining ef til sambúðarslita kemur, er sambúðarfólki unnt að gera með sér sambúðarsamning þar sem fjármálum og réttindum er skýrt fyrir komið. Slíkir samningar hafa fullt lagalegt gildi og hefur gerð þeirra aukist verulega á síðustu árum. Við gerð slíkra samninga skiptir máli að vandað til verka. Annars er hætta á að ákvæðum samnings sé vikið til hliðar með dómi, ef á þá reynir.

Lögmenn LAND búa yfir áratuga reynslu og sérþekkingu á málum sem tengjast sambúðar- og hjúskaparrétti. Þjónusta okkar felur meðal annars í sér gerð sambúðarsamninga og kaupmála, auk faglegrar ráðgjafar við sambúðarslit og hjónaskilnaði. Það skiptir miklu máli að njóta traustrar og vandaðrar þjónustu á slíkum tímamótum, enda geta rétt ákvörðun og rétt vinnubrögð haft úrslitaáhrif til framtíðar.

LAND Lögmenn veitir alhliða lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fjölskylduréttarmál, fasteignaréttarmál, málflutningur og fleira.

Address

Hlíðasmári 9
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Land lögmenn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Land lögmenn:

Shortcuts

Share

Category