22/09/2026
Orator, í samstarfi við LOGOS býður upp á upprifjunarnámskeið fyrir próftöku í Eignarétti I haustið 2026.
Salka er í meistaranámi við lagadeild Háskóla Íslands og hefur frá öðru námsári aðstoðað við rannsóknir á sviði eignaréttar, meðal annars í fullu starfi sumrin 2025 og 2026. Áður starfaði hún sem laganemi hjá LOGOS lögmannsþjónustu.
Salka hefur lagt sérstaka áherslu á eignarétt í námi sínu og lauk báðum eignaréttaráföngum deildarinnar með einkunnina 9,5. Við útskrift hlaut hún viðurkenningu Hollvinafélags lagadeildar fyrir besta námsárangur á BA-prófi og hafði áður hlotið hvatningarverðlaun Codex fyrir námsárangur á fyrsta ári.
Í námskeiðinu verður farið yfir námsefnið með próftöku í huga, með sérstakri áherslu á úrlausn raunhæfra verkefna.
Skráning fer fram í neðangreindu form-skjali og er skráning Bindandi.
https://forms.gle/MnYQGzDmqEbhczVN6