Novum lögfræðiþjónusta

Directions Website

Novum lögfræðiþjónusta Býður upp á alhliða lögfræðiþjónustu

Við hjá Novum tökum með ánægju þátt í Treyjudeginum til styrktar börnum með krabbamein.Ásamt því að starfsmenn mættu í t...
04/09/2026

Við hjá Novum tökum með ánægju þátt í Treyjudeginum til styrktar börnum með krabbamein.

Ásamt því að starfsmenn mættu í treyju til vinnu í dag styrktum við átakið með fjárframlagi.

Við hvetjum allar lögfræðistofur til að gera slíkt hið sama

Við hjá Novum notum hin ýmsu tækifæri til að koma vörumerkinu okkar á framfæri. Eitt slíkt tækifæri skapaðist á dögunum ...
27/08/2026

Við hjá Novum notum hin ýmsu tækifæri til að koma vörumerkinu okkar á framfæri. Eitt slíkt tækifæri skapaðist á dögunum á Motul torfærunni á Akureyri þar sem bílstóri bílsins, Grímur Helguson, stóð sig með stakri prýði 🏎️

⚽ Novum verður aftur með deild í Fantasy Premier League þennan veturinn!Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan og þú bætist ...
21/08/2026

⚽ Novum verður aftur með deild í Fantasy Premier League þennan veturinn!

Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan og þú bætist sjálfkrafa í deildina eftir að þú hefur skráð lið í leikinn:
https://l.messenger.com/l.php...

Málefni Grindavíkur og endurreisn samfélagsins þar hefur verið mörgum hugleikin.Telma Sif Reynisdóttir lögmaður hjá Novu...
18/05/2026

Málefni Grindavíkur og endurreisn samfélagsins þar hefur verið mörgum hugleikin.

Telma Sif Reynisdóttir lögmaður hjá Novum veltir því upp í aðsendri grein á Vísi að endurskoða þurfi sérstök lög sem miðuðu að því að verja fjárhagslega stöðu Grindvíkinga í kjölfar náttúruhmfaranna.

Hvetjum alla sem láta sig málið varða að lesa greinina.

Endurreisn Grindavíkur er eitt stærsta samfélagslega verkefni sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir. Vilji er til staðar hjá mörgum fyrrverandi íbúum til að snúa aftur heim þegar aðstæður leyfa. Nú hefur hins vegar komið í ljós að gildandi lagarammi veldur verulegum vanda ...

Það er ánægjulegt að segja frá því að Novum hefur útvíkkað þjónustu sína og rekur nú einnig fasteignasölu undir merkjum ...
13/05/2026

Það er ánægjulegt að segja frá því að Novum hefur útvíkkað þjónustu sína og rekur nú einnig fasteignasölu undir merkjum Novum.

Við leggjum höfuð áherslu á sanngjarna söluþóknun og persónulega þjónustu byggða á reynslu og gæðum.

Ef þú ert í söluhugleiðingum hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði eða nýbyggingar hvers konar þá hvetjum við þig til að hafa samband og sjá hvað við höfum upp á að bjóða.

Það er gleðilegt að segja frá því að Helena Ósk Einarsdóttir mun starfa hjá okkur sem laganemi í sumar.Þetta er annað su...
11/05/2026

Það er gleðilegt að segja frá því að Helena Ósk Einarsdóttir mun starfa hjá okkur sem laganemi í sumar.

Þetta er annað sumarið í röð sem Helena sinnir starfi laganema en hún hefur einnig verið í hlutastarfi hjá okkur síðastliðinn vetur.

Helena leggur stund á meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og stefnir að útskrift árið 2027.

Auk þess lauk hún prófi í Verðbréfaréttindum meðfram námi í vetur, við óskum Helenu til hamingju með þennan frábæra árangur 👏 👏

Novum liðið stækkar.Það er gaman að segja frá því að með ráðningu Laufeyjar og Sigfríðar er kynjahlutfall lögfræðinga st...
10/04/2026

Novum liðið stækkar.

Það er gaman að segja frá því að með ráðningu Laufeyjar og Sigfríðar er kynjahlutfall lögfræðinga stofunnar orðið jafnt en ef allir starfsmenn stofunnar eru teknir með eru konur 60% starfsmanna.

Laufey Sara Malmquist og Sigfríð Elín Þorvaldsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu.

09/02/2026

Telma Sif Reynisdóttir í skemmtilegu innslagi fyrir Jónsbók sem er gervigreind sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga sem tengir saman lög, reglur og dóma með áreiðanlegum heimildavísunum

Unnur E. Sveinsdottir lögmaður og ráðgjafi hjá Novum kennir námskeið um Gervigreind- regluverk og stefnumótun hjá Endurm...
20/01/2026

Unnur E. Sveinsdottir lögmaður og ráðgjafi hjá Novum kennir námskeið um Gervigreind- regluverk og stefnumótun hjá Endurmenntun HÍ.

Á námskeiðinu er fjallað um:

*Inntak gervigreindar og áhrif á samfélag, fyrirtæki og stofnanir.
*Til hvers gervigreind er nýtileg og hvaða hættur hún hefur í för með sér.
*Áskoranir við að móta reglur fyrir gervigreind, ólík regluverk og stefnur eftir heimshlutum.
*Reglugerð Evrópusambandsins – The EU AI Act, skipting í áhættuflokka og kröfur hvers flokks. Sérstök áhersla verður lögð á gervigreind sem felur í sér mikla hættu fyrir grundvallarréttindi einstaklinga.

Ávinningur þinn:

*Þekking á gervigreind og hvernig hún er ólík öðrum tæknibyltingum.
*Þekking á notkunarmöguleikum og hættum gervigreindar.
*Skilningur á reglum Evrópuréttar sem gilda um gervigreind, sem nýtist sérstaklega þegar þær verða innleiddar á Íslandi.
*Skilningur á því hvað fyrirtæki og stofnanir þurfa að gera til að mæta kröfum samkvæmt reglum Evrópuréttar og draga úr áhættu í starfsemi sinni.

Við hvetjum öll sem hafa áhuga til að skrá sig í gegnum link í fyrsta kommenti.

Við hjá Novum óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.Opnunartími um jól og...
18/12/2025

Við hjá Novum óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Opnunartími um jól og áramót:

23. desember Opið
24. desember Lokað
25. desember Lokað
26. desember Lokað
29. desember Opið
30. desember Opið
31. desember Lokað
1. janúar Lokað

Address

Bæjarlind 4
Reykjavík
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Novum lögfræðiþjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category