HLÍT - Lögmannsþjónusta

Directions Website Contact the practice

HLÍT - Lögmannsþjónusta Við bjóðum upp á persónulega þjónustu með áherslu á mannréttindasjónarmið. Nánari uppl

Þessir píkuborðu menn - tengill í athugasemd
19/11/2025

Þessir píkuborðu menn - tengill í athugasemd

28/11/2024
Og enn getur maður orðið hissa
16/10/2024

Og enn getur maður orðið hissa

Loksins er ég kominn með kennitölu en nú þarf ég að fá fjölskyldu mína til Íslands. Getur þú hjálpað mér að sækja um dvalarleyfi?

15/08/2024

Í Venesúela ríkir nú óöld sem jaðrar við borgarastyrjöld. Á hálfum mánuði hafa meira en 1.300 mótmælendur verið hnepptir í varðhald, þar á meðal á annað hundrað unglinga. Í það minnsta 24 hafa verið drepnir.

Þegar almennum borgara er skipaður lögráðamaður, sem er venjulega vegna alvarlegra geðjúkdóma, vímuefnaneyslu eða vitgla...
09/08/2024

Þegar almennum borgara er skipaður lögráðamaður, sem er venjulega vegna alvarlegra geðjúkdóma, vímuefnaneyslu eða vitglapa af völdum heilabilunar, á borgarinn rétt á því að fá að tjá sig um val á lögráðamanni, nema það sé augljóslega tilgangslaust. Sýslumaður framfylgir þessum rétti með því að senda einstaklingum bréf í pósthólf sitt á http://Ísland.is. Ef ekki er brugðist við því er gengið út frá því að viðkomandi óski ekki eftir því að fá að tjá sig. Hvað finnst ykkur um þessa framkvæmd?

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Það virðist ótrúlega algengt að fólk í fjöleignarhúsum geri lítinn greinarmun á séreign og sameign. Þeir hlutar hússins ...
12/07/2024

Það virðist ótrúlega algengt að fólk í fjöleignarhúsum geri lítinn greinarmun á séreign og sameign. Þeir hlutar hússins sem falla undir sameign eru einfaldlega ekki ætlaðir til þess að geyma dót sem ekki þjóna þar beinlínis hlutverki. Í hjólageymslu má geyma hjól og barnavagna, ekki búslóð. Í þvottahúsi má geyma þvottavél og þurrkarara, ekki reiðhjól. Í sameiginlegum stigagangi má ekki vera skóhilla og fatahengi nema samkomulag sé um slíkt meðal íbúa.

Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans.

Þetta er nokkuð áhugavert dæmi því hér er ekki um að ræða ummæli sem féllu í fjölmiðlum heldur gerði dómarinn sig vanhæf...
09/06/2024

Þetta er nokkuð áhugavert dæmi því hér er ekki um að ræða ummæli sem féllu í fjölmiðlum heldur gerði dómarinn sig vanhæfan með því að gefa afstöðu sína til kynna í dómsal. Dómari á ekki að mynda sér skoðun fyrr en hann er búinn að hlusta á vitnaleiðslur og munnlegan málfutning. Ég er ekki viss um að það sé raunhæft en það er allavega greinilegt af þessu að Landsréttur gerir þá kröfu til dómara að þeir haldi þeim skoðunum fyrir sig þar til aðalmeðferð lýkur.

Héraðsdómarinn Ingi Tryggvason var vanhæfur þegar hann dæmdi mann til fimmtán mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 142,5 milljóna króna sektar vegna brota á skattalögum. Hann olli eigin vanhæfi með því að tjá sig óvarlega um sakarefnið undir rekstri málsins.

Þessi árin er útilokað að spá fyrir um það hvernig dómstólar fari með mál sem varða takmarkanir tjáningarfrelsis.
31/05/2024

Þessi árin er útilokað að spá fyrir um það hvernig dómstólar fari með mál sem varða takmarkanir tjáningarfrelsis.

Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari hefur verið sýknaður af öllum kröfum tveggja blaðamanna á Heimildinni í Landsrétti.

Já, hefði kannski bara verið betra að hlusta strax?
16/04/2024

Já, hefði kannski bara verið betra að hlusta strax?

„Þetta er ánægjuleg niðurstaða fyrir mína umbjóðendur en á sama tíma býsna hryggileg, að það gangi dómur hjá Mannréttindadómstólnum á broti á þessari kjarnareglu lýðræðisríkja um frjálsar kosningar.“

Address

Suðurlandsbraut 52
Reykjavík
0108

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HLÍT - Lögmannsþjónusta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to HLÍT - Lögmannsþjónusta:

Shortcuts

Share

Category