Mannvirkjamál

Directions Website Contact the practice

Mannvirkjamál Sérsvið Mannvirkjamála lögmannsstofu er fyrst og fremst á sviði skipulags- og byggingarmála, eignaréttar, samningaréttar og stjórnsýsluréttar.

Við sinnum ráðgjöf, fræðslu og almennri hagsmunagæslu fyrir stjórnvöld, einstaklinga og lögaðila.

Mannvirkjamál fagnar því að lögmaður stofunnar, Ásta Sóley Sigurðardóttir, taki þátt í rannsóknarverkefninu „Byggingarga...
24/06/2026

Mannvirkjamál fagnar því að lögmaður stofunnar, Ásta Sóley Sigurðardóttir, taki þátt í rannsóknarverkefninu „Byggingargallar og rakaskemmdir – orsakir þeirra og umfang“! 🎉

Rannsókninni er stýrt af VERKVIST og koma auk þess ansi margir snillingar að. Verkefnið hlaut styrk úr Aski mannvirkjarannsóknasjóði HMS 2026.

Byggingargallar og rakaskemmdir geta haft veruleg áhrif á fasteignaeigendur og reynir þá oft á flókið samspil laga, regluverks og tæknilegra þátta. Rannsóknir sem auka þekkingu á orsökum slíkra galla eru mikilvægt framlag til bættra byggingargæða, aukins trausts og sterkari neytendaverndar.

Við hlökkum til að fylgjast með framvindu verkefnisins og þeim niðurstöðum sem það mun skila.

Hrafnhildur Guðjónsdóttir lögmaður starfar á Mannvirkjamálum. Sérhæfing Hrafnhildar er fyrst og fremst á sviði eignarrét...
28/05/2026

Hrafnhildur Guðjónsdóttir lögmaður starfar á Mannvirkjamálum. Sérhæfing Hrafnhildar er fyrst og fremst á sviði eignarréttar, skipulags- og mannvirkjamála, samningaréttar, stjórnsýsluréttar og eignaumsýslu.

Endilega hafðu samband. Við tökum vel á móti þér.

Eruð þið ekki örugglega með brunavarnir í lagi á meðan á byggingarframkvæmdum stendur? Er ekki örugglega einhver að hugs...
12/09/2024

Eruð þið ekki örugglega með brunavarnir í lagi á meðan á byggingarframkvæmdum stendur? Er ekki örugglega einhver að hugsa út í þetta í undirbúningi og á verkstað? Eða hvað? 🤷‍♀️

Í næstu viku, þriðjudaginn 17. sept, verður námskeið hjá Iðan fræðslusetur um Brunavarnir við byggingaframkvæmdir. Við hvetjum sem flesta til að skrá sig, námskeiðið er frá 13-17 og getur hreinlega skipt sköpum til að komast hjá tjóni á framkvæmdartíma!

Brunavarnir á framkvæmdatíma eru gríðarlega mikilvægar en oft er ekki nægilega vel hugað að þeim og áhættan vanmetin verulega.
Að undanförnu hafa verið margir alvarlegir eldsvoðar í byggingum á framkvæmdatíma, bæði í nýbyggingum og einnig vegna endurbóta á eldri byggingum. Í nær öllum tilfellum hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessi miklu tjón með fræðslu, réttu verklagi og verkferlum.

Þetta námskeið er fyrir alla sem standa í byggingaframkvæmdum og vilja koma í veg fyrir eldsvoða við þær. Markmið þess er að fara yfir það sem skiptir mestu máli þegar kemur að brunavörnum bygginga á framkvæmdatímanum.

04/03/2024

Öll gerum við þá kröfu að húsnæði sem við dveljumst í valdi okkur ekki heilsutjóni. Þetta hljómar eins og sjálfsagður hlutur en staðreyndin er sú að margir glíma við heilsufarsvandamál sem tengjast húsnæðinu sem þeir búa í eða þurfa að dvelja í vegna náms eða starfs...

Málþing um rakaskemmdir og myglu með áherslu á inniloft og loftræsingu - byrjar kl 13 í Háskólanum í Reykjavík. Mæli með...
04/03/2024

Málþing um rakaskemmdir og myglu með áherslu á inniloft og loftræsingu - byrjar kl 13 í Háskólanum í Reykjavík. Mæli með fyrir alla áhugasama!

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp úrskurð sl. föstudag í máli sem lögmaður Mannvirkjamál lögmannsstofu,...
14/02/2024

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp úrskurð sl. föstudag í máli sem lögmaður Mannvirkjamál lögmannsstofu, Ásta Sóley, rak fyrir nefndinni. Kærðir voru deiliskipulagsskilmálar frístundalóða, sem deilt var um hvort hefðu tekið gildi fyrir 12 árum síðan.

Nefndin féllst á þau rök lögmannsins að ekki væri hægt að byggja á því að skilmálarnir væru gildir vegna verulegra ágalla á málsmeðferð auk þess sem skilmálarnir ættu sér hvorki stoð í skipulagi né öðrum gögnum.

Hér má sjá úrskurð nefndarinnar:

Árið 2024, fimmtudaginn 8. febrúar, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mættir voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Ómar Stefánsson varaformaður og Þorsteinn...

Fer áhersla á hraðari uppbyggingu annars vegar og ábyrgð á gæðum, öryggi og heilnæmi bygginga saman hjá einu og sama stj...
12/02/2024

Fer áhersla á hraðari uppbyggingu annars vegar og ábyrgð á gæðum, öryggi og heilnæmi bygginga saman hjá einu og sama stjórnvaldinu?

Í Evrópu er álitamálið það hvort ríkjum sé heimilt að krefjast þess að farið sé eftir stöðlum sem ekki eru gjaldfrjálsir. Gjaldtaka er vandamálið og virðist…

Eru breytingar á byggingarreglugerð að skila sér í betri, öruggari og heilnæmari mannvirkjum? Eða erum við að vanda okku...
12/02/2024

Eru breytingar á byggingarreglugerð að skila sér í betri, öruggari og heilnæmari mannvirkjum? Eða erum við að vanda okkur við að setja reglur sem enginn svo fylgir?

Hverju skila breytingar á byggingarreglugerð fyrir hinn almenna fasteignaeiganda eða verktaka?

Væri ekki æskilegt að leggja áherslu samtímis á umhverfisáhrif mannvirkjagerðar annars vegar og gæði bygginga og eftirlit með mannvirkjagerð hins vegar? Gæði…

Address

Bæjarhraun 6
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mannvirkjamál posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Mannvirkjamál:

Shortcuts

Share

Category