Lög Nomos, félag laganema við Háskólann á Bifröst
Nafn og tilgangur félags
1. Félagið heitir Nomos, félag laganema við Háskólann á Bifröst. Aðsetur félagsins eru í Háskólanum á Bifröst.
2. Tilgangur félagsins
a) Auka tengsl og samheldni meðal allra nemenda innan lagadeildar Háskólans á Bifröst.
b) Að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi og mælskulistar.
d) Auka þátttöku laganema við Háskólann á Bifröst í almennri umræðu um lögfræðileg álitaefni í samfélaginu.
3. Starfstími Nomos og reikningsár er á milli aðalfunda.
4. Nú leysist félagið upp og renna þá öll réttindi þess og skyldur til nemendafélags Háskólans á Bifröst.
Stjórn Nomos
5. Stjórn Nomos skal skipuð sjö félagsmönnum. Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera, ristjóra og tveimur meðstjórnendum. Annar meðstjórnenda skal vera fulltrúi nýnema.
6. Stjórn Nomos stýrir málefnum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum gagnvart öðrum aðilum.
7. Formaður Nomos ritar firma félagsins. Formaður og gjaldkeri rita prókúru félagsins.
8. Óheimilt er að skuldbinda félagið einstakri skuldbindingu umfram 50.000 kr. nema að fengnu skriflegu samþykki meirihluta stjórnar.
9. Formaður, í forföllum hans varaformaður, kemur fram fyrir hönd Nomos innan sem utan Háskólans á Bifröst.
10. Formaður, í fjarveru hans varaformaður, stjórnar fundum stjórnarinnar. Í fjarveru þeirra stjórnar einhver stjórnarmanna fundi samkvæmt ákvörðun hverju sinni.
11. Varaformaður skal vera formanni innan handar í öllum málum og gegna starfi formanns í forföllum hans. Ef varaformaður getur ekki gegnt því hlutverki af einhverjum ástæðum skal annar stjórnarmeðlimur taka hans stað.
12. Gjaldkeri hefur yfirumsjón með fjárreiðum félagsins, einnig hefur hann umsjón með öllum fjárreiðum félagsins í samráði við stjórn. Þarf hann að standa skil á fjárreiðum félagsins á aðalfundi þess.
13. Ritara ber að skrá fundargerðir.
14. Meirihluti atkvæða ræður á stjórnarfundi en falli atkvæði jafnt fer formaður með oddaatkvæði. Stjórn telst ályktunarbær, ef meirihluti stjórnarmeðlima situr fund.
15. Segi stjórnarmaður af sér skal stjórn þegar tilkynna um forföll fráfarandi stjórnarmanns og auglýsa eftir nýjum aðila innan deildarinnar til að gegna stöðunni fram að næsta aðalfundi. Stjórn ákveður með lýðræðislegum hætti hvern frambjóðenda skal velja og skiptir með sér verkum að nýju.
Aðalfundur og kosningar
16. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í júní ár hvert. Til fundarins skal boða með auglýsingu á tryggilegan hátt, með viku fyrirvara hið minnsta og er hann þá lögmætur. Tillaga hlýtur samþykki ef meirihluti fundarmanna greiðir henni atkvæði.
17. Mál sem skulu tekin fyrir á aðalfundi:
1. Kjör fundastjóra og fundaritara
2. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum.
3. Stjórn félagsins leggur fram reikninga félagsins.
4. Kosning til stjórnar félagsins.
5. Lagabreytingar.
6. Ný stjórn tekur við.
7. Önnur mál.
18. Framboðum til stjórnar skal lýst fyrir upphaf kosninga á aðalfundi.
19. Aðeins félagsmenn Nomos hafa atkvæðisrétt og kjörgengi í stjórn og önnur hlutverk sem kosið er til á aðalfundi. Einfaldur meirihluti skal ráða niðurstöðum kosninga á aðalfundi.
20. Stjórn Nomos skal kosin á aðalfundi félagsins ár hvert. Formaður Nomos skal kjörin í sérstakri kosningu en að öðru leiti skipti stjórn með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi félagsins að loknum aðalfundi.
21. Fulltrúi nýnema er kosinn af nýnemum lagadeildar fyrir lok september hvers skólaárs. Skal hann halda uppi öflugum og góðum tengslum milli stjórnar Nomos og nema á fyrsta ári.
22. Falli atkvæði jafnt við kjör skal endurtaka kosningu milli viðkomandi frambjóðenda og falli atkvæði enn jafnt ræður hlutkesti. Sé aðeins einn frambjóðandi í kjöri skoðast hann sem sjálfkjörinn án kosninga.
23. Kjörnefnd skipuð 3 nemendum á aðalfundi skal annast skipulag og framkvæmd kosninga.
24. Náist ekki fullmönnuð stjórn á aðalfundi í júní
Félagsmenn
25. Allir sem greiða innritunargjöld vegna náms í lagadeild teljast félagar í Nomos nema þeir segi sig sérstaklega úr félaginu eða skipti um deild.
26. Stjórn Nomos er heimilt að ákvarða félagsgjöld. Þá er stjórn heimilt að veita þeim sem greiða félagsgjöld fríðindi umfram aðra.
27. Stjórn Nomos er heimilt að banna einstökum félagsmönnum þátttöku í viðburðum félagsins verði þeir uppvísir að ámælisverðri háttsemi þegar þeir koma fram í nafni félagsins eða á viðburðum á vegum þess.
28. Verði félagsmaður uppvís að grófri eða endurtekinni ámælisverðri háttsemi er stjórn Nomos heimilt að vísa viðkomandi úr félaginu. Einstaklingi sem vísað hefur verið úr félaginu er heimilt að beiðast inngöngu á nýjan leik á næsta aðalfundi eftir brotvikninguna.
Ritstjórn
29. Félagið gefur út rit að minnsta kosti einu sinni á ári.
30. Stjórn félagsins skipar ritstjóra. Meirihluti stjórnar getur vikið ritstjóra frá störfum ef veigamiklar ástæður mæla með því.
Ristjóri skal vera valinn úr hópi stjórnarmeðlima
31. Ritstjóri tilnefnir meðlimi í ritstjórn. Nýjir ritstjórnarmeðlimir skulu samþykktir af meirihluta stjórnar.
32. Ritstjóri skal gera stjórn félagsins grein fyrir störfum hennar á stjórnarfundum.
Annað
33. Félagsfund ber að halda hvenær sem stjórnin álítur nauðsynlegt. Þá skal halda félagsfund er tíundi hluti félagsmanna óska þess.
34. Kynningarfundur fyrir fyrsta árs nema skal haldinn á haustdögum við upphaf skólaárs. Aðalmarkmið hans er að kynna félagið fyrir nemendum og kjósa fulltrúa nýnema í stjórn félagsins.
Lagabreytingar
35. Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Til að lagabreyting öðlist gildi þarf hún að vera samþykkt af a.m.k. 2/3 hluta félagsmanna sem mættir eru á löglegan aðalfund. Tillögur að lagabreytingum frá stjórn skulu auglýstar samhliða tilkynningu um aðalfund.
Lög þessi taka gildi frá samþykkt þeirra, þann 21. júní 2011.