10/11/2026
Tilkynning.
Því miður kom í ljós að meiðsli mín eftir slys sem ég varð fyrir nýverið voru alvarlegri en í fyrstu var talið. Ég mun því þurfa að fara mér hægt í lengri tíma en ég hafði áætlað. Ég mun vera við vinnu við þau mál sem ég hef tekið að mér og framvinda þeirra verður ótrufluð.
Hvað varðar ný mál, þá verða áfram takmörk fyrir því hvað ég get bætt á mig. Það er þó alveg óhætt að senda tölvupóst og bera þau undir mig. Ég mun taka þau að mér ef ég hef möguleika.
Ég reikna með því að eftir 2-3 vikur verði ég búinn að ná fyrri styrk.
Bestu kveðjur
Hreiðar Eiríksson, lögmaður