18/06/2024
Vissir þú að leyndur galli í notuðu húsnæði þarf að jafnaði að nema 10% af kaupverði til þess að hægt sé að sækja skaðabætur vegna gallans? Haukur Örn Birgisson, lögmaður hjá Eignarétti, fer yfir sjónarmið sem að þessu lúta í Dagmálum.
Komi upp leyndur galli í húsnæði í Reykjavík sem kostar 8 milljónir að gera við, er ekki þar með sagt að hann fáist bættur frá seljanda. Það gæti aftur á móti reynst niðurstaðan á Neskaupstað.